life is short and hard like a bodybuilding elf

Friday, April 28, 2006

ok, djók

þetta var ekkert erfitt ... bara einhverjar sniðugar " " sem vantði fyrir aftan. notaði hluta af rökhugsuninni, sem ég var reyndar að spara fyrir morgundaginn, til að leysa þessa þraut.
p.s talandi um þrautir,

hver á fiskinn?

fimm hús í fimm mismunandi litum standa í röð frá vinstri til hægri. í hverju húsi býr maður af ákveðnu þjóðerni, engir tveir af því sama. íbúarnir fimm drekka ákveðinn drykk, reykja ákveðna vindlingategund og hafa ákveðið gæludýr, enginn það sama.

  1. bretinn býr í rauða húsinu
  2. svíinn á hund
  3. daninn drekkur te
  4. græna húsið er næst hús vinstra megin við það hvíta
  5. íbúi græna hússins drekkur kaffi
  6. sá sem reykir pall mall á fugla
  7. íbúi gula hússins reykir dunhill
  8. íbúi hússins í miðjunni drekkur mjólk
  9. norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu
  10. sá sem reykir blends býr við hliðina á þeim sem á ketti
  11. sá sem á hest býr við hliðina á þeim sem reykir dunhill
  12. sá sem reykir bluemasters drekkur bjór
  13. þjóðverjinn reykir prince
  14. norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu
  15. sá sem reykir blends býr við hliðina á þeim sem drekkur vatn

ok, djók

þetta var ekkert erfitt ... bara einhverjar sniðugar " " sem vantði fyrir aftan. notaði hluta af rökhugsuninni, sem ég var reyndar að spara fyrir morgundaginn, til að leysa þessa þraut.
p.s talandi um þrautir, finniði út hver á fiskinn í gátu einsteins á www.visindavefur.hi.is

á þetta ekki að vera auðvelt?

ótrúlegt ... jæja, ég er orðin sérfræðingur í himnuspennum og vöðvasamdrætti o.fl, en það að ætla að setja inn "linka" á þessa blessuðu bloggsíðu er gersamelga óþolandi og mrð öllu óframkvæmanleg, fyrir utan einhverjar nokkrar síður sem vilja festast. getur einhver sagt mér hvað ég þarf að gera til að þykjast eiga fullt af vinum inná þessu bloggi?
er farin að sofa, fyrsta próf í fyrramálið

Sunday, April 16, 2006

gleðilega páska

frábær páskadagsmorgun. ég keyrði austur á torfastaði eftir sýningu í gærkvöldi. þegar ég kom þangað fékk ég strax frábæran mat að borða og svo fórum við krakkarnir (á aldinum 18-28) inn í stofu og útbjuggum ratleik fyrir fullorðna fólkið og persónulega málshætti, skalli er flösu nærri, betri er hannes en útnes og annes, feitt græðir fólk á fertugsafmælum, sælir eru selfysingar þótt fátækari séu, betra er fóstur í eggi en fugl í skógi, o.fl.
ratleikurinn sem var liðakeppni, konur á móti körlum var leystur með glans og miklum hamagangi eins og tíðkast í minni fjölskyldu, allavegana hávaðinn og hamagangurinn sem er einkennismerki fjölskyldunnar. dæmi: pabbi minn stakk sér í heitapottinn í öllum fötunum, bæjarstjórinn í garðabæ missti sig í akstri útá túni og drífa frænka íhugaði vel að læsa hliðinu svo að karlarnir myndu missa tíma.
núna fer ver að verða síðastur að sjá ANÍMANÍNA, aðeins þrjár sýningar eftirá þriðjudag, fimmtudag og laugardag, allir að mæta

Monday, April 10, 2006

já, já,... já,.........


dómarnir á Anímanínu eru komnir, jeij. flestir eru frekar góðir ... þið getið svo sem bara skoðað það sjálf á www.studentaleikhusid.is . annars er minn uppáhaldsdómur á víðsjá, þeir sem hafa séð sýninguna ... heimspeki aristotelesar er nákvæmlega það sem við vorum að velta fyrir okkur í öllu þessu æfingarferli ... íhí

Tuesday, April 04, 2006

ANÍMANÍNA

jæja, þá er geðveikin hafin ... generalprufa stúdentaleikhússins var í kvöld ... klikkunin er farin af stað og í kjallaranum hjá mér hanga 16 búningar nýkomnir úr þvottavélinni og tilbúnir fyrir frumsýningu á morgun.
annars er svaka prógram fyrir morgundaginn, salý kl. 1, matur á vitaborgaranum kl. 4, og frumsýningin kl. 8 já og svo náttúrulega frumsýningarpartý eftirá ... sjáum til hvað maður endist þar sem ég er ekki ennþá farin að sofa ... er svo spennt og stressuð núna að ég er hreinlega ekkert þreytt ... verð samt að fara að skríða uppí.

en nú verða bara allir að drífa sig í leikhús, allar upplýsingar fáið þið á www.studentaleikhusid.is ... bannað að missa af

Sýningar á Anímanínu!

Þri. 4. apríl generalprufa
Mið. 5. apríl Frumsýning
Lau. 8. apríl Önnur sýning
Sun. 9. apríl Þriðja sýning
Mán. 10. apríl Fjórða sýning
Fim. 13. apríl Fimmta sýning
Lau. 15. apríl Sjötta sýning
Þri. 18. apríl Sjöunda sýning
Fim. 20. apríl Áttunda sýning
Lau. 22. apríl Lokasýning

Almennt miðaverð: 1.200,-
HÍ-nemar: 800,-
Hópatilboð (10+ manns): 800,-

Monday, March 20, 2006

af hverju læri ég aldrei?
alltaf sama sagan. klukkan að ganga þrú á íslandi og ég ennþá vakandi þar sem að ég er búin að vera að vinna eitthvað fjandans verkefni sem ég átti náttúrlega að vera löngu búin með, eða þannig lagað. annars er alltaf eitthvað að gleðjast yfir. mamma var að gefa mér flugmiða til parísar eftir prófin í maí svo nú er bara að vona að verkföllin í frakklandi fari að leysast svo að hún sigrún mín geti nú tekð á móti mér og sé ekki föst í prófum þegar ég ætla að koma, verðum bara að bíða og sjá. svo kom líka góð hugynd frá raino vini minum um að ég myndi nýta mér ódýrt austurrískt flugfélag og kellti mér til vínar frá parís 60 evrur fram og til baka. frábær hugmynd ef hún er framkvæmanleg.
jæja verð að fara að sofa í hausinn á mér.
takk fyrir föstudagsdammið embla mín, vonandi komstu heilu á höldnu til köben
gilligó

Wednesday, March 15, 2006


fyrir frábæran vin sem er að fara að taka sína tilraun nr. 2 á bretti

yfirlið

það er alltaf gaman að vera til. í kvöld var ég á stúdentaleikhúsæfingu þar sem allt var frábært, bæði mín og allar hinar æfingarna. svo ákvað ég að fara að hitta sollu og tinnu sem var frábært og þær studdu heilhugar þá ákvörðun mína að fá mér "permanent". annars er ekkert annað að frétta, nema kanski það að Víkingur lekstjóri er kærasti evu signýar fyrrverandi gaggó vinkonu/bekkjarsystur minnar. eva ég bið að heilsa þér.

Wednesday, March 08, 2006

keilumót þjóðleikhússins 2006





sigurvegarar þetta árið voru "TEAM SIGGI" eða stelpurnar í frammhúsinu. þessar myndir eru hér fyrir vinkonur mínar sem unnu sökum óvenju fágaðs keilustíls og svakalegs keppnisanda. og svo það gleymist örugglega ekki þá var hún bylgja okkar stigahæsti keppandi kvöldsins. bylgja mín, þú varst fjölskyldunni til sóma, knús og klemm fyrir það.

... og það var þá það


farðu að sofa í hausinn á þér katla.
verknámið heldur áfram og nema þú viljir fara aftur í sturtu, í öllum fötunum, þá verður þú að vera vel upplögð fyrir morgundaginn.